Sjómaður vikunnar – Valtýr Auðbergsson

Sjómaður vikunnar – Valtýr Auðbergsson
November 21, 2014 Elín

Fullt nafn : Valtýr Auðbergsson

Fæðingardagur og staður : 19 Apríl 1976 í Vestmanneyjum

Fjölskylduhagir : Jónína Margrét og Auðberg Óli

Draumabíllinn : Audi A6

Besti og versti matur : Hægelduð nautalund besti og versti svið og aftur svið

Fallegasti staður sem þú hefur komið á : Heimaey ætli það sé ekki það sem manni dettur í hug núna

Starf : Sjómaður á Vestmannaey VE 444

Hvað er það sem heillar þig mest við sjóinn : Vinnutíminn og vinnufélaganir og það að maður þarf ekki að vakna við vekjaraklukku og þarf ekki að vaska upp eftir matinn.

Eftirminnilegasti samstarfmaðurinn á sjó og hvað er það sem gerir hann eftirminnilegri en aðra : Ætli það sé ekki Birgir Magnússon, því hann er svo einstakur á alla kanta og með alveg svakalega “gott” minni.

Stundar þú einhverja líkamsrækt á sjónum : Nei

Ef þú myndir smíða þér skip/bát hvað myndir þú láta það heita : Ufsaskalli

10394489_10204018780179072_3809919712200576968_n

Hvað var draumastarfið þitt sem lítill strákur : slökkvimaður eins og ég sagði í video þegar ég var 5ára og er til einhverstaðar

Skemmtilegasti árstíminn á sjó : Sumarið og haustinn þegar millilandað er stundum fyrir austan

Hvað finnst þér erfiðast við sjómennskuna : Fjarveran frá litla pjakknum

Eftirminnilegasta atvikið á sjónum :  Ætli það sé ekki allt sem að Biggi Magg gerir og kannsi þegar ég fór í ræsistríð við Kidda Vélstjóra og það stóð í 3 daga með stórtapi mínu og hluti af þvi er til á youtube

Hvaða lið verður Englandsmeistari í ár : Aston Villa

Ef þú ættir að velja eina íþrótt til þess að keppa með áhöfninni þinni í hvaða íþrótt yrði fyrir valinu : Lúdó eða eitthvað sem þarf að drepa í með byssu þvi að við erum með Redneck Rambó um borð og það er alveg bókað að við vinnum allt þá

Stolt siglir fleygið mitt með Gylfa Ægis eða Ship-o-hoj : Stolt siglir fleygið mitt

Siginn fiskur eða gellur : Plokkari. Hitt er fyrir gamalt fólk

Smúla eða spúla : Smúla

Eitthvað að lokum : Biggi Magg þú skuldar mér lím og jafnvel eitthvað annað líka þegar þetta fer á netið.